





Höfðatorg
Róót er veitingastaður á Höfðatorgi sem leggur áherslu á gómsætan og næringarríkan hádegisverð, matreiddan með þarmaflóruna í huga.


Velkomin í Róót
Gut Happy
Við erum róótföst í þeirri sannfæringu að góð líðan byggist upp með tímanum. Ekki með skyndilausnum, heldur jafnvægi, fjölbreytni, góðu hráefni og mat sem er unninn af alúð.
Þess vegna köllum við það sem við gerum iðrakennda matargerð. Við sameinum aldagamla visku og nútímaþekkingu til að skapa mat sem er heiðarlegur, bragðgóður og nærandi. Hvort sem það er máltíð, brauð eða vara sem fylgir þér heim er markmið okkar alltaf hið sama, að gera fjölbreytt og vandað val, einfalt og aðgengilegt.
Við trúum ekki á fullkomnun, við trúum á litlar góðar ákvarðanir sem með tímanum geta skapað betri forsendur fyrir góða líðan.
Matseðill dagsins
Nýr seðill
alla virka daga
Fimm daga vikuseðill með næringargildum og ofnæmisvöldum, súpur, brauð úr eigin bakstri og à la carte allan daginn.
Skoða matseðil