Ólífutré í salnum hjá Róót

Um okkur

Gut Happy

Við erum róótföst í þeirri sannfæringu að góð líðan byggist upp með tímanum. Ekki með skyndilausnum, heldur jafnvægi, fjölbreytni, góðu hráefni og mat sem er unninn af alúð.

Rætur sem skipta máli

Innblástur okkar kemur úr matarhefðum víðs vegar að úr heiminum. Þrátt fyrir ólíka menningu og ólíkar matarhefðir eiga þær margt sameiginlegt, fjölbreytt úrval plantna, árstíðabundið hráefni, gerjuð matvæli og virðing fyrir þeim undirbúningstíma sem góður matur þarf. Við höfum leitað aftur í ræturnar, skoðað hvernig kynslóðir á undan okkur nærðust og hvað hefðirnar geta kennt okkur í dag.

Róótföst trú

Í dag vitum við að fjölbreytt mataræði og heilbrigð þarmaflóra hefur áhrif á fleira en aðeins meltinguna. Þarmarnir eiga í stöðugum samskiptum við heilann og þess vegna teljum við jafnvægi í mataræði skipta máli, ekki aðeins fyrir bragðið heldur fyrir líðan okkar í heild.

Iðrakennd matargerð

Þess vegna köllum við það sem við gerum iðrakennda matargerð. Við sameinum aldagamla visku og nútímaþekkingu til að skapa mat sem er heiðarlegur, bragðgóður og nærandi. Hvort sem það er máltíð, brauð eða vara sem fylgir þér heim er markmið okkar alltaf hið sama, að gera fjölbreytt og vandað val, einfalt og aðgengilegt.

Það sem vex hægt

Við trúum ekki á fullkomnun, við trúum á litlar góðar ákvarðanir sem með tímanum geta skapað betri forsendur fyrir góða líðan.

Gut HappySkoða matseðil

Salurinn

Salurinn okkar er líka til leigu

Salurinn í Turninum við Höfðatorg er rúmgóður og bjartur. Við leigjum hann út fyrir viðburði, fundi og einkasamkvæmi og tökum vel á móti hópum. Hafðu samband og við finnum réttu umgjörðina.

Hafðu samband